Lýsing
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum vinnur eftir vottuðu gæðakerfi samkvæmt alþjóðlega faggildingarstaðlinum ÍST EN ISO/IEC 17025:2017 um hæfni og starfsemi prófunarstofa. Staðallinn gerir m.a. kröfu um að unnið sé samkvæmt gæðakerfi sem skjalfest er í gæðahandbók, að unnið sé samkvæmt kerfisbundnum og skilgreindum aðferðum við stjórnun gæðamála og að skrifaðar séu verklagsreglur fyrir alla þætti prófunar sem staðallinn tekur til. Gæðakerfi stofnunarinnar er skjalfest í rafrænni gæðahandbók CCQ (Cloud compliance & Quality). Í gæðaráði stofnunarinnar sitja gæðastjóri, staðgengill gæðastjóra og fulltrúar allra deilda sem sinna faggiltum rannsóknum. Kristín Matthíasdóttir er gæðastjóri Keldna og Kristbjörg Sölvadóttir er staðgengill hennar. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum fékk vottun á gæðakerfi stofnunarinnar og tók við yfirlýsingu frá SWEDAC (Swedish Board for Accreditation and Conformity Assessment) um faggildingu á völdum prófunaraðferðum þann 8. júní 2006. SWEDAC uppfyllir öll skilyrði sem European co-operation for Accreditation (EA) gerir til óháðra úttekaraðila. Fyrirtækið byggir úttekt sína til faggildingar á samningi, sem faggildingarstofur innan EA hafa gert með sér, um gagnkvæma viðurkenningu á skýrslum og vottorðum frá faggiltum fyrirtækjum og að allir aðilar samningsins geri jafngildar kröfur til faggildingar. Faggilding er formleg viðurkenning óháðra faggildra eftirlitsaðila á því að viðkomandi prófunarstofur stofnunarinnar hafi þekkingu og hæfni til að vinna viðkomandi rannsóknir. Hún er enn fremur staðfesting eftirlitsaðila á því að stofnunin uppfylli allar kröfur faggildingarstaðalsins varðandi móttöku og skráningu sýna, framkvæmdir prófana og útgáfu svara og er viðurkenning á gæðakerfi og gæðaeftirliti vegna tækja, húsnæðis og hæfni starfsfólks. Með faggildingu prófunaraðferða eru uppfylltar allar kröfur alþjóðlega gæðastaðalsins IST EN ISO/IEC 17025 um hæfni og starfsemi prófunarstofa. Enn fremur eru uppfyllt ákvæði reglugerðar nr. 351 frá 1993 sem kveður á um að rannsóknastofur sem sinna rannsóknum í tengslum við opinbert eftirlit skuli faggilda prófunaraðferðir sínar. Faggildingu þarf að viðhalda og úttektaraðilar SWEDAC heimsækja stofnunina reglulega og taka gæðakerfi hennar út. Í framhaldinu er svo gefið út endurbætt og endurnýjað faggildingarvottorð. Jafnt og þétt hafa verið að bætast við fleiri faggiltar rannsóknaraðferðir hjá stofnuninni.
Dagur styrkveitingar | 8 jún. 2006 |
---|---|
Viðurkenning | Alþjóðlegt |
Veitendur | SWEDAC |
Skjöl og tenglar
- A004381-001 Scope Lab Institute for Experimental Pathology University of Iceland 240112
Skrá: application/pdf, 577 KB
Tegund: Texti
- A004381-001 Omfattning Lab Institute for Experimental Pathology University of Iceland 240112
Skrá: application/pdf, 587 KB
Tegund: Texti