Abstract
Vel fer á því við þessi tímamót Læknablaðsins að draga fram greinar úr fortíðinni sem athyglisverðar eru að bestu manna yfirsýn. Þorvaldur Veigar Guðmundsson rifjar upp einn áfanga á leið lækninga til nýrrar aldar og velur til þess grein sem hann skrifaði sjálfur í blaðið. Ekki fer á milli mála að þar fer grein sem er "læknisfræðilega mikilvæg og sígild" og "dæmigerð fyrir þá þekkingu, sem þá var að ryðja sér til rúms í læknisfræði, þ.e. notkun geislavirkra efna við greiningu sjúkdóma og var alger nýjung hér á landi" (1). Einar Stefánsson fylgir hins vegar úr hlaði grein Guðmundar Þorgeirssonar og félaga um lýðheilsu sem byggist á gagnasöfnun Hjartaverndar. Í Hjartavernd hefur verið unnið merkilegt starf á heimsmælikvarða. Einar hefði þó fullt eins getað valið til að mynda leiðara sem hann skrifaði sjálfur í Læknablaðið (2, 3). Komu þar fram tímamótaskoðanir um inntökuskilyrði til læknanáms sem voru tákn um breyttan hugsunarhátt og nýjan skilning á þeim eiginleikum sem góðan lækni mega prýða.
Original language | Icelandic |
---|---|
Journal | Læknablaðið |
Publication status | Published - 1 Jan 2005 |
Other keywords
- Tímarit
- Læknablaðið
- Menntun
- Vísindasaga
- Læknar
- LBL12
- Fræðigreinar
- Education, Medical, Graduate
- Physicians
- Learning
- Iceland