Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Árbók Háskóla Íslands 2008, pp. 262-263

Sigurður Ingvarsson*

*Corresponding author for this work

Research output: Chapter in Book/Report/Conference proceedingChapter

Abstract

Meginviðfangsefni Tilraunastöðvarinnar er rannsóknir á dýrasjúkdómum og varnir gegn þeim. Tilraunastöðin hefur skapað sér sérstöðu með framúrskarandi rannsóknum m.a. vegna mannauðs og sérstakrar sjúkdómastöðu á Íslandi sem tiltölulega auðvelt er að halda skráningu yfir. Vegna einangrunar landsins eru hér vel skilgreindir dýrastofnar sem hafa annað næmi fyrir ýmsum sjúkdómum en gengur og gerist. Rannsóknir á slíkum efnivið hefur gefið Tilraunastöðinni sérstöðu. Helstu rannsóknasviðin voru ónæmis- og sjúkdómafræði fiska, hæggengir smitsjúkdómar, þ.e. mæði-visna, riða og skyldir sjúkdómar, sumarexem í hestum og sníkjudýra- og sýklafræði. Einn sérstæðasti efniviðurinn til rannsókna voru sýni úr hvítabjömum. Allmargir áfangar náðust sem kynntir voru á fjölmörgum ráðstefnum hérlendis og erlendis. Í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum birtust m.a. niðurstöður rannsókna í príon-, veiru-, bakteríu-, sníkjudýra- og ónæmisfræðum. Þar af voru birtar átján greinar í ISI-tímaritum, sem er nálægt meðaltali síðastliðinna ára. Flestir sérfræðingar stofnunarinnar eiga samstarf við innlenda og erlenda vísindamenn. Rannsóknir á sjúklegum breytingum í nýrum bleikja staðfestu PKD-sýki (Proliferative Kidney Disease) sem er af völdum smásæs sníkjudýrs (einfrumungs) og er það í fyrsta sinn sem þetta smitefni greinist hér á landi. M.a. greindust tvær áður óþekktar hníslategundir við rannsóknir á sníkjudýrum á og í rjúpum. Tilraunastöðin hefur þjónustuskyldur varðandi greiningar á dýrasjúkdómum sem eru í nánum tengslum við rannsóknirnar til að samlegðaráhrif verði sem best. Sértekjur fengust vegna útseldrar sérfræðivinnu, einkum vegna sjúkdómagreininga. Tilraunastöðin framleiddi bóluefni og mótefnablóðvökva gegn bakteríusjúkdómum í sauðfé. Einnig var safnað blóði úr hrossum, kindum og naggrísum til notkunar á rannsóknastofum. Smádýr voru notuð við tilraunir, bæði fyrir Tilraunastöðina og aðrar rannsóknastofnanir.
Original languageIcelandic
Title of host publicationÁrbók Háskóla Íslands 2008
Pages262-263
Number of pages2
Publication statusPublished - 31 Dec 2008

Cite this