Til gagns og til fegurðar. Sjálfsmyndir í ljósmyndum og klæðnaði á Íslandi 1860–1960

Research output: Book/ReportBookpeer-review

Abstract

Hvað segja ljósmyndir um okkur? Í bókinni Til gagns og til fegurðar er varpað fram vekjandi spurningum um klæðnað og útlit Íslendinga 1860-1960 og sýnt hvernig ljósmyndir endurspegla sjálfsmynd þjóðarinnar á hverjum tíma. Hér má líka fá svar við ótal spurningum um klæðnað og útlit, og brugðið er upp dæmum um klæðnað Íslendinga í fjölmörgum myndum í hundrað ár. Hvernig varð þjóðbúningurinn til? Af hverju vildu karlar ekki vera í þjóðlegum fötum? Hvenær fóru konur að ganga í buxum? Hversu íslensk er lopapeysan? Bókin byggist á rannsóknum Æsu Sigurjónsdóttur listfræðings á íslenskri búningasögu í ljósmyndum. (Heimild: Bókatíðindi)
Original languageIcelandic
Place of PublicationReykjavík
Publisher Þjóðminjasafn Íslands
Number of pages207
ISBN (Print)9789979790204
Publication statusPublished - 2008

Cite this