Tíðni einkenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á Landspítala og á hjúkrunarheimilum

Svandís Íris Hálfdánardóttir, Kristín Lára Ólafsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Abstract

Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar er að meta tíðni 5 algengra einkenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á 11 lyflækningadeildum Landspítala og 7 hjúkrunarheimilum. Efniviður og aðferðir: Upplýsingum var safnað afturskyggnt úr skráningu í Meðferðarferli fyrir deyjandi sjúklinga í sjúkraskrá, af lyfjablöðum og úr lyfjafyrirmælakerfinu Therapy hjá 232 einstaklingum sem létust árið 2012. Niðurstöður: Um helmingur einstaklinganna lést á Landspítala (n=119) og var kynjahlutfall jafnt en 70% þeirra sem létust á hjúkrunarheimilum voru konur. Meðferðarferli fyrir deyjandi sjúklinga var tekið í notkun í 50% andláta á Landspítala og 58% á hjúkrunarheimilum. Í 45% tilvika var ferlið notað í sólarhring eða skemur fyrir andlát. Algengustu einkenni á síðasta sólarhring lífs voru verkir (51%), óróleiki (36%) og hrygla (36%). Tíðni einkenna var svipuð milli stofnana og sjúkdómahópa en marktækur munur var á óróleika hjá sjúklingum með krabbamein og sjúklingum með aðra sjúkdóma. Tæp 81% sjúklinga voru fast á morfínskyldum lyfjum, fastir morfínskammtar og skammtar gefnir eftir þörfum voru marktækt hærri hjá krabbameinssjúklingum og sjúklingum á Landspítala. Fastar lyfjagjafir við óróleika voru halóperidól (45%), díasepam (40%) og mídazólam (5%). Scopoderm-plástur var gefinn við hryglu hjá 70% sjúklinga. Ályktun: Töluverður fjöldi sjúklinga var með einkenni á síðasta sólarhring lífs, bæði á Landspítala og hjúkrunarheimilum. Niðurstöðurnar benda til þess að þörf sé á að yfirfara og bæta einkennameðferð, meðal annars með því að aðlaga betur morfínskammta að þörfum sjúklingsins, nota fasta skammta róandi lyfja við óróleika og nýta fleiri andkólínvirk lyf við hryglu.
Introduction: The purpose of this study was to evaluate the frequency of 5 common symptoms and drug treatments prescribed and given in the last 24 hours of life in 11 medical units at Landspitali National University Hospital of Iceland (LUH) and in 7 nursing homes (NH). Material and methods: Data was collected retrospectively from 232 charts of patients who died in 2012, using documentation in the Liverpool Care Pathway (LCP) and the medication management system. Results: About half of the patients died at LUH with similar gender ratio but 70% of patients in NH were women. The LCP was used for 50% of all deaths at LUH and 58% in NH. In 45% of all deaths LCP was used for 24 hours or less. The most common symptoms were pain (51%), agitation (36%) and respiratory tract secretions (36%). Frequency of symptoms was similar between institutions and age groups. Cancer patients had significantly higher incidence of agitation and were prescribed and given higher doses of morphine compared to other groups. Regular medication for agitation was haloperidol (45%), diazepam (40%) and midazolam (5%). Close to 70% of the patients were treated with a scopolamin patch for death rattle. Conclusion: A large number of patients have symptoms in the last 24 hours of life both in hospital and in nursing homes. Symptom control can be improved by adjusting morphine doses to patients need, using regular doses of benzodiazepine for agitation and better use of anticholinergic medication for death rattle.
Original languageIcelandic
JournalLæknablaðið
DOIs
Publication statusPublished - 3 May 2017

Other keywords

  • Líknarmeðferð
  • Sjúkrahús
  • Hjúkrunarheimili
  • MAO12
  • ONC12
  • Terminally Ill
  • Palliative Care
  • Hospitals
  • Nursing Homes

Cite this