Strengleikar

Research output: Chapter in Book/Report/Conference proceedingForeword/postscript

Abstract

Strengleikar eru safn smásagna um ástir og ævintýri riddara og hirðmeyja. Sögurnar, sem eru 21 að tölu, voru upphaflega skrifaðar fyrir franskt hirðfólk á 12. öld, en þó að efnið sé gamalt fjalla þær um sams konar vandamál og fólk glímir við á okkar dögum og varða ást og hatur, hjónaband, framhjáhald, ófrjósemi, ofríki og ofbeldi. Sögurnar voru þýddar úr frönsku yfir á norrænu á 13. öld og Íslendingar, sem ávallt hafa kunnað að meta góðar bókmenntir, lásu þær og lögðu út af þeim í eigin verkum. Útgáfan er ætluð almenningi og henni fylgja bæði ítarlegar skýringar og fróðlegur inngangur eftir dr. Aðalheiði Guðmundsdóttur sem bjó textana til prentunar. Strengleikar koma út á vegum Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands í ritröðinni Íslensk rit. (Heimild: Bókatíðindi)
Original languageIcelandic
Title of host publicationÍslensk rit
PublisherReykjavík: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands
Number of pages182
ISBN (Print)9789979977407
Publication statusPublished - 2006

Cite this