Rafeyðing á hvekk um þvagrás sökum hvekkauka : árangur fyrstu fimm árin

Valur Þór Marteinsson

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Abstract

Objective: The most common surgical intervention for lower urinary tract symptoms due to benign prostatic enlargement has been transurethral resection of the prostate (TURP). Transurethral electrovaporization of the prostate (TUVP) is a recent modification of TURP and has been used in Central Hospital Akureyri from 1997. The purpose of this study was to evaluate the safety, complications, efficacy and clinical indications in patients undergoing TUVP with benign prostatic enlargement in five years period. Material and methods: 36 patients underwent TUVP in the period January 1997 to March 2002. Prospective registration was performed during the first 4-8 weeks after operation. The author evaluated all patients before the intervention. Conventional surgical instruments for transurethral surgery were used with a roller electrode instead of a loop and in half of the patients some tissue was removed with a loop. Results: The average age was 77.2 years (56-94) and average hospital stay was 5.3 days (2-14). 24 (58.4%) patients had urinary retention before the operation and average operation time was 27.6 minutes (15-42). No operative or in-hospital mortality was in this study or during the first 30 days and all patients were discharged. No one required transfusion or re-intervention within 30 days from operation. Three (8.3%) patients got complications within 30 days and one underwent bladder neck incision during the follow-up period. 32 (89%) were discharged without urinary catheter and 33 (91.7%) were satisfied with the result of the operation. Conclusions: TUVP is a safe, efficacious and technically feasible operation for patients with benign prostatic enlargement. Despite limited material, the clinical outcome and complications rate were comparable to larger series.
Tilgangur: Algengasta skurðaðgerð við þvaglátaeinkennum sökum hvekkauka hefur verið hvekkúrnám um þvagrás (TURP, transurethral resection of pros­tate). Reynt hefur verið að gera endurbætur á þeirri aðgerðartækni og ein slíkra er svokölluð rafeyðing á hvekk um þvagrás (transurethral electrovaporization of prostate, TUVP). Aðferðin var tekin í notkun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) 1997. Aðaltilgangur rannsóknarinnar var að kynna hina nýju tækni, kanna ábendingar aðgerða, öryggi, fylgikvilla og árangur aðgerðarinnar fyrstu fimm árin. Efniviður og aðferðir: Sjúkraskrár allra sjúklinga er undirgengust rafeyðingu á hvekk um þvagrás af greinarhöfundi á Handlækningadeild FSA á tímabilinu 01.1997-03.2002 voru yfirfarnar. Um var að ræða 36 sjúklinga. Framsæ skráning var gerð fyrstu 4-8 vikur eftir aðgerð. Aðgerðin var framkvæmd í mænu- eða utanbastsdeyfingu. Notuð voru hefðbundin speglunartæki til aðgerðar á hvekk um þvagrás. Í stað skurðlykkju var notað sérstakt kefli eða hjól sem rennt var eftir vefnum. Hjá 18 (50%) sjúklingum var einnig skorinn vefur með skurðlykkju í lok aðgerðar. Niðurstöður: Meðalaldur sjúklinga var 77,2 ár (56-94) og meðaltal áhættuflokks (ASA) var 2,4 (1-4). Hjá 24 (58,4 %) sjúklingum var þvagteppa aðalábending aðgerðar. Meðaltal legudaga var 5,3 dagar (2-14). Aðgerðartími var 27,6 mínútur (15-42) að meðaltali og 9,1 g (2,5-21) af hvekkvef voru fjarlægð að meðaltali þegar vefur var líka skorinn. Enginn sjúklingur lést <30 daga frá aðgerð. Allir útskrifuðust. Enginn þurfti á blóðgjöf að halda í eða eftir aðgerð og engin enduraðgerð var <30 daga. Þrír (8,3%) sjúklingar fengu fylgikvilla <30 daga og einn (2,8%) þurfti síðar að undirgangast blöðruhálsskurð um þvagrás sökum blöðruhálsþrengsla. 32 (89%) sjúklinganna útskrifuðust þvagleggslausir og 33 (91,7%) reyndust sáttir við árangur aðgerðar. Ályktun: Rafeyðing á hvekk um þvagrás sýnist vera örugg og tæknilega góð aðgerð. Enginn skurðdauði var og blóðgjafir reyndust óþarfar. Fylgikvillar voru fáir og engir alvarlegir. Árangur er sambærilegur við erlendar rannsókir.
Original languageIcelandic
JournalLæknablaðið
Publication statusPublished - 1 Feb 2005

Other keywords

  • Blöðruhálskirtill
  • Þvagfærasjúkdómar
  • Þvagrás
  • Fylgikvillar
  • LBL12
  • Fræðigreinar
  • Aged
  • Aged, 80 and over
  • Electrosurgery
  • Humans
  • Male
  • Middle Aged
  • Prospective Studies
  • Prostatectomy
  • Prostatic Hyperplasia
  • Treatment Outcome
  • Urethra
  • Volatilization

Cite this