Abstract
Í október 2020 var undirritaður samningur um að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Garðabæ og verða þannig hluti af verkefninu Barnvæn sveitarfélög. Innleiðingarferlið er unnið í samstarfi við UNICEF á Íslandi og var einnig gerður samstarfssamningur á skólaárinu 2022 – 2023 við
Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna um að koma að gagnvirkni umræðu í fimm skipti með leikskólastjórum leikskóla Garðabæjar um mótun leikskólastarfsins og innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi viðkomandi leikskóla, sjá frétt á heimasíðu Garðabæjar.
Verkefnið Barnvænt sveitarfélag miðar að því að byggja upp breiðfylkingu sveitarfélaga á Íslandi sem láta sér mannréttindi barna varða, með Barnasáttmálann að leiðarljósi og auknu samstarfi milli ríkis og
sveitarfélaga. Hugmyndafræði Barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og UNICEF á Íslandi styður sveitarfélögin
í innleiðingu sinni á Barnasáttmálanum. UNICEF á Íslandi er íslensk landsnefnd Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem berst fyrir réttindum barna bæði erlendis og á Íslandi.

Original language | Icelandic |
---|---|
Number of pages | 17 |
Publication status | Published - 27 Jun 2023 |