Abstract
Markmið með gerð Orðalykils var að búa til traust próf sem metur orðaforða íslenskra barna á grunnskólaaldri. Við stöðlun var gengið út frá 70 orðum en þau voru hluti af 352 orðum sem valin voru í upphafi rannsóknar. Úrtakið var 1.200 börn á aldrinum sex til fimmtán ára af öllu landinu en viðmið fyrir stöðlun var 1.000 börn. Svörun reyndist 91,7% og var prófið lagt fyrir 84,2%. Endanlegt stöðlunarúrtak samanstóð af 958 börnum sem skiptust í tuttugu aldursbil. Farið var í 25 skóla og prófið lagt fyrir þau börn sem höfðu samþykki forráðamanns fyrir þátttöku. Enginn munur reyndist vera á orðaforða drengja og stúlkna en smávægilegur munur kom fram milli landshluta. Því voru búin til ein viðmið (norm) fyrir allt landið sem hafa meðaltalið 100 og staðalfrávikið 15. Þrátt fyrir almenna tilhneigingu til hækkunar skora með aldri var það ekki alltaf reyndin. Fyrirhuguð er útgáfa handbókar með Orðalykli þar sem þessi breytileiki milli aldursbila verður jafnaður. Þar verður jafnframt að finna upplýsingar um fylgni heildarskora við samræmdar einkunnir barna í fjórða, sjöunda og tíunda bekk.
Original language | Icelandic |
---|---|
Journal | Sálfræðiritið |
Publication status | Published - 2004 |
Other keywords
- Orðaforði
- Mælitæki
- Börn
- Málþroski