Abstract
Haustið 2019 var rannsókn gerð meðal nema á fyrsta námsári í grunnnámi til bakkalárprófs á flestum
námsleiðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ákveðið var að sambærileg könnun yrði lögð
fyrir nema sem eru í tveggja ára kennaranámi í kennslufræði grunnskóla og menntunarfræði
leikskóla. Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum úr rannsókn meðal nema á námsleiðinni
kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi.
Kennaranemar voru inntir eftir bakgrunni sínum, hvort þeir væru í stað- eða fjarnámi, hvort þeir
væru í launaðri vinnu, viðhorfum til námsins og fleira. Kennarar veittu rannsakendum leyfi til að
kynna rannsóknina í kennslustund og nemendur fengu í kjölfarið senda netslóð þar sem þeir gátu
svarað könnuninni
Original language | Icelandic |
---|---|
Publisher | Menntavísindastofnun, Menntavísindasvið, Háskóli Íslands |
ISBN (Print) | 978-9935-9519-0-8 |
Publication status | Published - Feb 2020 |
Other keywords
- Viðhorfskannanir
- Kennslufræði
- Háskólanemar