Ný aðalnámskrá framhaldsskóla og gömul námskrárfræði

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Abstract

Ákvæði um markmið og markmiðssetningu í almennum hluta nýrrar aðalnámskrár framhaldsskóla (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012) eru afsprengi bandarískrar hefðar
í námskrárfræðum sem rekja má til rita eftir John Franklin Bobbitt og Ralph W. Tyler og var
síðan þróuð af Benjamin S. Bloom, Hildu Taba og fleirum. Í greininni er rökstutt að kjarni
þessarar hefðar, sem nýja námskráin tilheyrir, felist í kröfu um að nám sé skipulagt út frá
nemendamiðuðum markmiðum sem hægt sé að ná eða ljúka. Þessari hefð hefur verið andmælt
af mörgum námskrárfræðingum síðustu 45 árin eða þar um bil. Tveir af þekktustu andmælendunum eru Bandaríkjamaðurinn Joseph Schwab og Bretinn Lawrence Stenhouse sem báðir héldu fram menntapólitískum sjónarmiðum í anda húmanisma eða þess sem á ensku kallast „liberal education“ og rökstuddu að ekki sé skynsamlegt að líta á námsefni skóla eingöngu sem tæki til að ná markmiðum. Í greininni er sagt frá meginatriðum í rökunum sem Schwab og Stenhouse færðu gegn námskrárfræðahefðinni og bent á að þau veki bæði spurningar um hvort
það sé mögulegt og hvort það sé æskilegt að móta skólastarf eftir markmiðum eins og nýja aðalnámskráin segir að gert skuli.
Original languageIcelandic
Pages (from-to)71-89
JournalUppeldi og menntun
Volume21
Issue number2
Publication statusPublished - 2012

Cite this