Landspróf miðskóla 1946–1976: Áhrif nýju stærðfræðinnar

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

5 Downloads (Pure)

Abstract

Landspróf miðskóla sem inntökupróf í menntaskóla og kennaraskóla og síðar fleiri skóla
var haldið á árunum 1946–1976. Prófað var í átta námsgreinum þar sem íslenska vó tvöfalt.
Landsprófið var upphaflega grundvallað á reglugerð nr. 3/1937 um námsefni til prófs upp
úr öðrum bekk Menntaskólans í Reykjavík. Landsprófið í stærðfræði hélst að miklu leyti
óbreytt á árunum 1947–1965. Prófað var í lesnum dæmum sem nemendur höfðu lært áður
og í ólesnum dæmum. Frá árinu 1966 breyttist prófgerðin: lesin dæmi voru felld niður,
prófið var stytt og tekið var að prófa úr svokallaðri nýrri stærðfræði. Þar var lögð aukin
áhersla á tölur og eiginleika þeirra en einnig á mengi ásamt tilheyrandi rithætti og aðgerðum
samkvæmt Drögum að námsskrá í landsprófsdeildum miðskóla frá árinu 1968. Markmiðið
með innleiðingu nýju stærðfræðinnar var að auka skilning nemenda í stærðfræði.
Fjögur landsprófsverkefni í stærðfræði frá árunum 1953, 1966, 1971 og 1975 voru greind
með tilliti til inntaks og færnikrafna samkvæmt greiningarlykli TIMSS. Greiningin sýnir
að inntak prófverkefnanna breyttist í samræmi við Drög að námsskrá en um leið styttust
dæmin, orðadæmum fækkaði og jafnframt fjölgaði innbyrðis óskyldum prófatriðum. Færnikröfur færðust frá lausnaleit yfir í aukna beitingu rútínuaðferða en dæmum með flóknum samsettum aðferðum fækkaði.
Gögn sýna að meðaleinkunn í stærðfræði, sem áður hafði verið lægri en meðaleinkunn
allra átta námsgreinanna á landsprófi, færðist nær heildarmeðaleinkunn og nemendum
gekk hlutfallslega betur en áður. Vonir höfðu staðið til þess að innleiðing mengjafræði yki
skýrleik og skilning. Vart var þó hægt að búast við því. Nemendur þurftu á sama tíma að
kynnast venjulegri algebru sem mörgum hefur reynst torskilin og námsefnið studdi samhengið milli mengjafræði og algebru aðeins að litlu leyti. Eftir sitja spurningar um hvort
glíma við sundurlaus atriði stuðli fremur að vélrænum skilningi en lengri samsett dæmi, og
hvort lesin dæmi eigi rétt á sér.
Original languageIcelandic
Pages (from-to)1-16
JournalNetla
Volume2016
Publication statusPublished - 31 Dec 2016

Bibliographical note

Í Menntakviku

Other keywords

  • Landspróf
  • Stærðfræði
  • Inntökupróf
  • Menntaskólar
  • Kennaraskólar

Cite this