Abstract
Meginmarkmið þessarar greinar er að benda á leiðir fyrir kennara og aðra uppalendur
sem vilja bæta lesskilning barna og ungmenna með því að ræða um það sem lesið
er. Bókin og upplifun af lestri er einn lykillinn að tungumálinu og tungumálið er
ein mikilvægasta forsenda náms. Fullorðnir, og þar á meðal kennarar, geta aðstoðað
barnið við að læra og þroska tungumálið með því m.a. að tala við það, lesa fyrir
það, hlusta þegar það les sjálft og ræða um það sem lesið er. Allt þetta getur aukið
lesskilning. Markmið bókmenntalesturs með nemendum er að fá þá til að velta fyrir
sér þeim tilfinningum sem textinn kallar fram, finna tengingar sem textinn býður
upp á og ræða viðbrögðin sem textinn vekur. Með samtali við fullorðið fólk og
önnur börn öðlast barnið þekkingu á ýmsu, svo sem: sjálfu sér, nánasta umhverfi,
náttúru og öðrum manneskjum. Í samtalinu læra þau að beita tungumálinu og deila
upplifunum og þannig öðlast þau reynslu sem er forsenda þess að skapa félagsleg tengsl
og þróa samkennd og vináttu. Þessir færniþættir eru mjög í anda grunnþátta íslenskra
námskráa, eins og læsis, lýðræðis, mannréttinda og jafnréttis. Hér er einnig fjallað
um þær uppeldis- og menntahugmyndir sem hafa haft áhrif á sögur Astrid Lindgren
um Línu. Í greininni verða tekin dæmi, aðallega samtöl, úr bókum Astridar Lindgren
um Línu langsokk, til að sýna hvernig vinna má með textana til að kveikja umræður
meðal barna og unglinga. Í sögunum eru margar áhugaverðar kringumstæður þar sem
tilvistarlegar og siðferðilegar spurningar vakna í samskiptum barna og í samskiptum
þeirra við heim hinna fullorðnu. Val á texta til að vinna með réðst m.a. af því að Lína
langsokkur hefur skemmt börnum í gegnum tíðina og mörg þeirra hafa samsamað sig
þessari óstýrilátu persónu.
Original language | Icelandic |
---|---|
Pages (from-to) | 15 s. |
Journal | Netla |
Volume | Sérrit 2018 – Bókmenntir, listir og grunnþættir menntunar. |
DOIs | |
Publication status | Published - 31 Dec 2018 |
Other keywords
- Lína langsokkur (sögupersóna)
- Lesskilningur
- Lestur
- Samræður
- Samskipti