Kulnun grunnskólakennara: Stuðningur í starfsumhverfinu og áfallaþroski

Þórdís Lilja Ævarsdóttir, Ingibjörg V. Kaldalóns

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Abstract

Markmiðið með rannsókninni var að öðlast skilning á upplifun og reynslu
grunnskólakennara af kulnun og þeim áhrifum sem starfsumhverfi hefur á kulnun
grunnskólakennaranna að þeirra eigin mati. Stuðningur úr starfsumhverfinu var
skoðaður í ljósi sjálfsákvörðunarkenninga Ryan og Deci (2017) um hvernig unnt sé
að mæta sálrænum grunnþörfum þeirra fyrir sjálfræði, hæfni og félagstengsl. Einnig
var sjónum beint að hvort og þá hvaða persónulega lærdóm, svokallaðan áfallaþroska,
kennarar draga af þeirri reynslu að hafa lent í kulnun. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem
upplifa áfallaþroska finna fyrir breytingum á þremur sviðum í lífi sínu; breyttri lífssýn,
breyttum tengslum við aðra og breyttri og sterkari sjálfsmynd. Fyrirbærafræðilegri
nálgun var beitt þar sem tekin voru djúpviðtöl við sjö starfandi grunnskólakennara sem
höfðu lent í kulnun og snúið aftur til kennslu. Niðurstöður sýndu að það sem réð mestu
var andlegt og líkamlegt álag sem og skortur á stuðningi á vinnustaðnum. Álagið fólst
í að kennararnir þurftu að sinna mörgum mismunandi hlutverkum sem gátu stangast
á. Þeim fannst sig oft skorta sjálfræði í störfum sínum og upplifðu að þeir hefðu hvorki
hæfni né bjargir til að sinna þessum mismunandi hlutverkum. Í kjölfarið upplifðu þeir
vanmátt og skömm. Stuðningur í starfsumhverfi kennaranna skipti þá sköpum, að finna
að þeir skiptu aðra máli og upplifa að þeir tilheyrðu hóp. Kennararnir upplifðu allir að
lífið væri á einhvern hátt betra en áður en þeir lentu í kulnun. Þeir töldu sig hafa nýja og
breytta lífssýn, vera þakklátari fyrir daglegt líf, hafa breytta og sterkari sjálfsmynd og vera
meðvitaðri um að rækta tengsl við fólk sem væri þeim mikilvægt. Rannsóknin varpar
auknum skilningi á þann lærdóm sem draga má af kulnun og hvernig starfsumhverfið
getur stutt kennara. Þannig má vonandi fækka í hópi kennara sem hverfa frá störfum
vegna kulnunar.
Original languageUndefined/Unknown
Pages (from-to)1-17
JournalNetla
DOIs
Publication statusPublished - 25 Oct 2023

Cite this