Abstract
Í fyrirlestrinum er rætt um sjónvarpsþáttaröðina The Crown (2016) en það eru sögulegir þættir sem hverfast um líf og tilveru Elísabetar Bretadrottningar II. Þeir eru byggðir á sögulegum atburðum en eru ekki heimildaþættir að sögn handritshöfunda og skrifaðir inn í ákveðna drottningarhefð sem tekur mið af þeim femínísku straumum sem eru ráðandi. Um leið er yfir þeim ákveðin fortíðarþrá sem er mjög vinsæl í öllu afþreyingarefni um þessar mundir, sér í lagi því sem finna má á vinsælum streymisveitum á borð við Netflix. Fjallað verður um póstfemíníska valkosti, birtingarmyndir þess að vera þjóðhöfðingi, verndari/yfirmaður bresku þjóðkirkjunnar og um leið hefðbundin kona, móðir og eiginkona sem reynir að gera eiginmanni sínum til geðs og halda hjónabandinu gangandi
Original language | Icelandic |
---|---|
Publication status | Published - 2020 |