Abstract
Introduction: In this retrospective study we analysed all ERCP procedures performed at the National University Hospital in Reykjavik, Iceland, for the period 1983-1992. Material: A total of 644 procedures were performed on 477 patients. Results: The main indication for a diagnostic ERCP was suspected choledocholithiasis in 58.8% of cases. Cannulation of the papilla of Vater was successfully achived in 94% of patients and in 82% the desired duct was visualised. Juxtapapillary diverticula were found in 14.5% of patients. The success at cannulation was significally less in that group. Choledocholithiasis was found in 19.4% more often in the patients with diverticula, 29.5 vs. 18.8%. The number of therapeutic interventions was 158 performed on 84 patients (24.5% of all ERCP). The most common procedure was sphincterotomy, performed in 84% of cases. Stone extraction was successfully achived in 58% of all attempts. The overall complications rate was 7%, most frequently acute pancreatitis (4.7%) followed by cholangitis (1.9%) and bleeding (0.3%). The complications were mild in the majority of cases but serious ones did occur and were fatal in three (0.5%) patients related to severe pancreatitis. Conclusion: The results of this retrospective study in Iceland are comparable to what others have reported previously.
Inngangur: Í þessari rannsókn voru kannaðar niðurstöður allra holsjárröntgenmynda af gallvegum og brisgangi (endoscopic retrograde cholangio- pancreatography, ERCP) sem framkvæmdar voru á Landspítalanum á árunum 1983-1992. Efniviður: Framkvæmdar voru 644 rannsóknir á 477 sjúklingum. Niðurstöður: Algengasta tilefnið var greining og meðferð steina í gallpípu (ductus choledochus) eða í 55,9% tilfella. Þræðing á hringvöðva í skeifugarnartotu (papilla Vateri) tókst í 93,5% tilrauna. Í 82% tilfella tókst rannsóknin fullkomlega, það er fylla tókst það gangakerfi sem sóst var eftir. Poki við skeifugarnartotuna (juxtapapillary diverticulum) fannst hjá 14,5% sjúklinga og tókst þræðing síður hjá þeim. Steinar í gallgangi sáust í 19,4% rannsókna gerðra í greiningarskyni og oftar hjá þeim er höfðu skeifugarnarpoka. í 24,5% rannsókna voru framkvæmdar aðgerðir, eða 158 aðgerðir á 84 sjúklingum. Oftast var framkvæmdur hringvöðvaskurður (papillotomia) eða í 84,2% aðgerða. Steinúrdráttur úr gallgangi tókst með vissu í 66,2% aðgerða. Aukaverkanir komu fyrir í 7% allra rannsókna og var brisbólga algengust (4,7%). Langflestar aukaverkanir voru vægar, en sex sjúklingar (1%) veiktust alvarlega, í öllum tilfellum var um svæsna brisbólgu að ræða og má rekja dauða þriggja þeirra beint eða óbeint til rannsóknarinnar. Ályktanir: Árangur holsjárröntgenmynda af gallvegum og brisgangi á Landspítalanum 1983-1992 er sambærilegur við niðurstöður rannsókna annarra, bæði hvað varðar tæknilega framkvæmd rannsóknarinnar og fylgikvilla.

Original language | Icelandic |
---|---|
Journal | Læknablaðið |
Publication status | Published - 1 Feb 1997 |
Other keywords
- Cholangiopancreatography, Endoscopic Retrograde
- Iceland