Hjartaígræðsla : meðferð fyrir börn og unglinga með hjartasjúkdóm á lokastigi

Gunnlaugur Sigfússon, F. Jay Fricker

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Abstract

Heart transplantation, which is the recently accepted treatment for children and adolescents with end stage heart disease, is the subject of this review article. Issues such as selection of patients, follow up and management post transplant are discussed, as well as the surgical procedure and the immediate postoperative management. Results from recent studies of long term survival following pediatric heart transplantation are discussed. Short term survival following heart transplantation is now excellent but limited long term follow-up data is available as this operation has only been performed for about two decades. One year survival is now over 90% and five year survival is estimated to be close to 70% in major transplant centers around the world. Post transplant coronary artery disease is mainly responsible for the decreased long term survival. Complications of immunosuppression such as infections, lymphoprolifrative disorders and depressed renal function are still common but usually not life threatening. Non-compliance with medication was observed amongst teenage recipients and can have lethal consequences. Despite this, it has been shown that heart transplantation can provide good quality of life and prolong survival in pediatric patients with end-stage heart disease.
Í þessari yfirlitsgrein er gerð grein fyrir hjartaígræðslu sem er nýleg og áhrifamikil meðferð fyrir börn og unglinga með hjartasjúkdóm á lokastigi. Fjallað er um val á sjúklingum fyrir þessa aðgerð, aðgerðina sjálfa og eftirlit og meðferð sem hjartaþegar gangast undir. Skammtíma árangur þessarar meðferðar er nú mjög góður en minna er vitað um langtímahorfur barna og unglinga sem gangast undir hjartaígræðslu þar sem aðgerðin hefur einungis verið framkvæmd undanfarin 15 ár. Nýlegar niðurstöður frá þremur stórum barnasjúkrahúsum í Bandaríkjunum um langtímahorfur hjartaþega eru kynntar. Langtímalifun er takmörkuð af kransæðasjúkdómi sem hrjáir hið ígrædda hjarta en fimm ára lífun er áætluð vera um 70%. Fylgikvillar ónæmisbælingar eru hvimleiðir og sumir hverjir alvarlegir, eins og æxlisvöxtur og skerðing á nýrnastarfsemi. Strangt eftirlit og langvarandi lyfjataka virðist setja mark sitt á líf barna og sérstaklega unglinga sem gangast undir hjartaígræðslu. Þrátt fyrir þetta getur hjartaígræðsla gjörbreytt og lengt líf barna og unglinga sem lifað hafa takmörkuðu lífi vegna hjartasjúkdóms á lokastigi.
Original languageIcelandic
JournalLæknablaðið
Publication statusPublished - 1 Aug 1996

Other keywords

  • Börn
  • Hjartasjúkdómar
  • Hjartaaðgerðir
  • Líffæraflutningar
  • Heart Diseases
  • Heart Transplantation
  • Adolescent
  • Child
  • Iceland
  • Cardiac Surgical Procedures

Cite this