Abstract
Í greininni er fjallað um hvaða áhrif má ætla að hugmyndir um svokallaða grunnþætti menntunar í aðalnámskrá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, sem kom út árið 2011, hafi á hlutverk kennara og fagmennsku þeirra. Lagt er út af grein sem Ólafur J. Proppé skrifaði árið 1992 um fagmennsku kennara og skólastarf. Því er haldið fram að flestir þeir þræðir sem Ólafur vefur í greininni birtist í grunnþáttum nýrrar aðalnámskrár. Á báðum stöðum er horft til samtímans sem framtíðarinnar, inn í skólann og út fyrir veggi hans til samfélagsins. Lögð er áhersla á að hlutverk kennara sé að taka frumkvæði að breytingum á skólastarfi sem stuðli að því að nemendur verði virkir þátttakendur. Ekkert af þessu er mögulegt án þeirrar fagmennsku og faglegrar ábyrgðar kennara á starfi skólanna sem Ólafur hvatti svo mjög til í sinni grein.
Original language | Icelandic |
---|---|
Pages (from-to) | 1-6 |
Journal | Netla |
Publication status | Published - 2012 |