TY - JOUR
T1 - Grænn femínismi
T2 - Vistfemínískir þræðir í íslenskri umhverfispólitík
AU - Karlsdóttir, Unnur Birna
PY - 2022/10/31
Y1 - 2022/10/31
N2 - Kvenfrelsisbarátta síðustu rúmlega hundrað árin hefur markað spor í hugarfar, ekki aðeins á Vesturlöndum heldur alþjóðlega. En saga femínisma inniber einnig skörun við baráttu fyrir verndun náttúru og umhverfis. Þessi hugmyndafræðilegi þráður, femínísk náttúrusýn, fæddi af sér nýjan meið innan femínisma sem almennt gengur nú undir heitinu vistfemínismi á íslensku. Í þessari grein er fjallað um nokkur meginatriði í hugmyndafræði vistfemínisma og hvernig þessarar stefnu hefur gætt hér á landi í umræðu um jafnréttismál og umhverfisvernd. Fjallað er um upphaf vistfemínisma á Íslandi eins og hann birtist í rituðum heimildum. Horft er til upphafs þessarar hugmyndastefnu á Íslandi, hvaða hugmyndir voru þar ofarlega á baugi og hvort finna megi áhrif vistfemínisma í stefnu stjórnvalda í umhverfismálum á síðustu árum. Varðandi þetta síðarnefnda þá afmarkast rannsóknin hér við útgefna stefnu stjórnvalda í umhverfismálum, eins og hún birtist í tilteknum heimildum, en ekki þá hlið málsins hvort kynjaðri umhverfistefnu hafi verið fylgt eftir í framkvæmd. Það er hins vegar ekki síður verðugt rannsóknarefni og verður vonandi verkefni nýrra vísindarannsókna á næstunni.
AB - Kvenfrelsisbarátta síðustu rúmlega hundrað árin hefur markað spor í hugarfar, ekki aðeins á Vesturlöndum heldur alþjóðlega. En saga femínisma inniber einnig skörun við baráttu fyrir verndun náttúru og umhverfis. Þessi hugmyndafræðilegi þráður, femínísk náttúrusýn, fæddi af sér nýjan meið innan femínisma sem almennt gengur nú undir heitinu vistfemínismi á íslensku. Í þessari grein er fjallað um nokkur meginatriði í hugmyndafræði vistfemínisma og hvernig þessarar stefnu hefur gætt hér á landi í umræðu um jafnréttismál og umhverfisvernd. Fjallað er um upphaf vistfemínisma á Íslandi eins og hann birtist í rituðum heimildum. Horft er til upphafs þessarar hugmyndastefnu á Íslandi, hvaða hugmyndir voru þar ofarlega á baugi og hvort finna megi áhrif vistfemínisma í stefnu stjórnvalda í umhverfismálum á síðustu árum. Varðandi þetta síðarnefnda þá afmarkast rannsóknin hér við útgefna stefnu stjórnvalda í umhverfismálum, eins og hún birtist í tilteknum heimildum, en ekki þá hlið málsins hvort kynjaðri umhverfistefnu hafi verið fylgt eftir í framkvæmd. Það er hins vegar ekki síður verðugt rannsóknarefni og verður vonandi verkefni nýrra vísindarannsókna á næstunni.
KW - vistfemínismi, umhverfisfemínismi, kvenlæg vistfræði, umhverfi, náttúra, náttúruvernd, umhverfisvernd, jafnrétti, kvenfrelsi
UR - https://ritid.hi.is/index.php/ritid/article/view/177
M3 - Grein
VL - 2
SP - 141
EP - 164
JO - Ritið. Tímarit Hugvísindastofnunar
JF - Ritið. Tímarit Hugvísindastofnunar
IS - 2022
ER -