„Faggi, tappi, lessa, feit eða heit“ : orðtíðni framhaldsskólanema um staðalmyndir kynhneigðar og kyngervis

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Abstract

Greinin fjallar um viðhorf framhaldsskólanema til staðalmynda á borð við útlit, kyngervi
og kynhneigð. Til að skyggnast inn í hugmyndaheim þeirra var lögð megindleg myndakönnun fyrir 238 þátttakendur í tveimur framhaldsskólum. Myndakönnunin var þess
eðlis að sjö myndir voru valdar með það fyrir augum að þær væru á einhvern hátt staðalmynd(ir) fyrir tiltekna eiginleika, á borð við kynhneigð, útlit, karlmennsku eða kvenleika.
Nemendur áttu að merkja við uppgefin orð sem þeim fannst eiga við um hverja mynd.
Marktækur munur var á orðavali nemenda um myndirnar eftir kyni. Ennfremur mátti
draga þá ályktun að mörg einkenni gagnkynhneigðarhyggju hafi komið fram í viðhorfum
og svörum nemenda. Piltar notuðu neikvæðari orð um sumar myndirnar og virtust þeir
frekar en stúlkurnar hafa tileinkað sér ríkjandi orðræðu um kvenleika og karlmennsku.
Bæði kynin voru þó undir áhrifum ríkjandi orðræðu um útlit, staðalmyndir og kynhneigð
sem bendir til þess að kynjakerfið hafi enn áhrif á menningu framhaldsskólanna og viðhorf nemenda.
Original languageIcelandic
Pages (from-to)1-18
JournalNetla
Publication statusPublished - 2016

Other keywords

  • Ritrýndar greinar
  • Viðhorf
  • Framhaldsskólanemar
  • Orðræðugreining
  • Staðalímyndir
  • Kynhneigð
  • Kyngervi

Cite this