Abstract
Einmanaleiki og félagsleg einangrun eru viðurkennd lýðheilsuvandamál eldra fólks sem hafa áhrif á heilsu þess og vellíðan. Tilgangur þessarar greinar er að kanna hugtökin einmanaleika og félagslega einangrun meðal eldra fólks. Jafnframt verður fjallað um nýlegar íslenskar rannsóknir og alþjóðlegar samantektir um efnið, með áherslu á skilgreiningar, greinarmun og tegundir einmanaleika. Aðferðin byggist á athugun á fyrirliggjandi rannsóknum og heimildum um einmanaleika og félagslega einangrun meðal eldra fólks, með sérstakri áherslu á nýlegar rannsóknir, skýrslur og samantektir. Rannsóknirnar undirstrika mikilvægi þess að viðhalda góðri heilsu, félagslegum tengslum og virkni á lífsleiðinni til að koma í veg fyrir og takast á við einmanaleika og félagslega einangrun á efri árum. Félagsleg tengsl eru sérstaklega mikilvæg þar sem þau hafa tilhneigingu til að breytast með aldrinum þannig að hættan á einmanaleika meðal eldra fólks aukist. Samantekt þessi getur stuðlað að auknum skilningi á einmanaleika og félagslegri einangrun. Niðurstöðurnar undirstrika nauðsyn þess að starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu, félagasamtök og aðrir séu meðvitaðir um skilgreiningar og nýjustu þekkingu á einmanaleika þannig að takast megi á við hann og draga sem mest úr honum meðal eldra fólks
Original language | Icelandic |
---|---|
Pages (from-to) | 15-23 |
Journal | Tímarit félagsráðgjafa |
Volume | 18 |
Issue number | 1 |
Publication status | Published - 1 Jul 2024 |