TY - JOUR
T1 - Bíbí í Berlín uppfrædd og fermd
AU - Stefánsdóttir, Guðrún V.
AU - Ólafsdóttir, Sólveig
AU - Magnússon, Sigurður Gylfi
PY - 2022/12/13
Y1 - 2022/12/13
N2 - Bíbí hét fullu nafni Bjargey Kristjánsdóttir (1927–1999) og var kennd við kotbæ foreldra sinna, Berlín, sem var rétt utan við Hofsós. Hún þótti bráðgert barn en veiktist á fyrsta ári og var í kjölfarið stimpluð sem „fáviti“ af fjölskyldu sinni og sveitungum. Bíbí var fædd á þeim tíma sem fötluðu fólki og fjölskyldum þess stóð engin opinber þjónusta til boða. Hún naut engrar formlegrar skólagöngu, var hornreka á heimilinu framan af og var falin fyrir gestum og gangandi. Bíbí skildi eftir sig umfangsmikla sjálfsævisögu sem hún skrifaði í einrúmi, hélt leyndri fyrir fjölskyldu sinni og samferðafólki og fáir vissu um tilvist hennar. Sjálfsævisaga Bíbíar ber vott um góða greind og innsæi í líf sitt og aðstæður og kemur að flestum tímabilum í lífshlaupi hennar. Markmið greinarinnar sem hér fer á eftir er tvíþætt. Annars vegar að varpa ljósi á barnæsku Bíbíar, uppfræðslu hennar og fermingu eins og birtist í sjálfsævisögunni, en þó að hún hafi ekki gengið í skóla fékk hún kennslu heima fyrir og lærði meðal annars að lesa og skrifa. Hins vegar er rýnt í margþættar opinberar heimildir sem til eru um barnæsku Bíbíar með það að markmiði að afhjúpa söguleg viðhorf sem enn þann dag í dag setja mark sitt á skólagöngu og tilveru fatlaðs fólks. Með þeim hætti teljum við að greina megi þau menningarlegu viðhorf sem finna mátti á þeim tíma sem Bíbí var að alast upp og um leið spegla samtímann í sögu hennar. Sjálfsævisaga Bíbíar er einstök heimild sem stendur framarlega í flokki íslenskra sjálfsbókmennta þar sem hún er til þess fallin að auka þekkingu á stöðu þeirra sem voru á jaðri samfélagsins, ekki síst fatlaðra kvenna og stúlkna.
AB - Bíbí hét fullu nafni Bjargey Kristjánsdóttir (1927–1999) og var kennd við kotbæ foreldra sinna, Berlín, sem var rétt utan við Hofsós. Hún þótti bráðgert barn en veiktist á fyrsta ári og var í kjölfarið stimpluð sem „fáviti“ af fjölskyldu sinni og sveitungum. Bíbí var fædd á þeim tíma sem fötluðu fólki og fjölskyldum þess stóð engin opinber þjónusta til boða. Hún naut engrar formlegrar skólagöngu, var hornreka á heimilinu framan af og var falin fyrir gestum og gangandi. Bíbí skildi eftir sig umfangsmikla sjálfsævisögu sem hún skrifaði í einrúmi, hélt leyndri fyrir fjölskyldu sinni og samferðafólki og fáir vissu um tilvist hennar. Sjálfsævisaga Bíbíar ber vott um góða greind og innsæi í líf sitt og aðstæður og kemur að flestum tímabilum í lífshlaupi hennar. Markmið greinarinnar sem hér fer á eftir er tvíþætt. Annars vegar að varpa ljósi á barnæsku Bíbíar, uppfræðslu hennar og fermingu eins og birtist í sjálfsævisögunni, en þó að hún hafi ekki gengið í skóla fékk hún kennslu heima fyrir og lærði meðal annars að lesa og skrifa. Hins vegar er rýnt í margþættar opinberar heimildir sem til eru um barnæsku Bíbíar með það að markmiði að afhjúpa söguleg viðhorf sem enn þann dag í dag setja mark sitt á skólagöngu og tilveru fatlaðs fólks. Með þeim hætti teljum við að greina megi þau menningarlegu viðhorf sem finna mátti á þeim tíma sem Bíbí var að alast upp og um leið spegla samtímann í sögu hennar. Sjálfsævisaga Bíbíar er einstök heimild sem stendur framarlega í flokki íslenskra sjálfsbókmennta þar sem hún er til þess fallin að auka þekkingu á stöðu þeirra sem voru á jaðri samfélagsins, ekki síst fatlaðra kvenna og stúlkna.
U2 - 10.24270/serritnetla.2022.94
DO - 10.24270/serritnetla.2022.94
M3 - Grein
SN - 1670-0244
SP - 1
EP - 15
JO - Netla
JF - Netla
ER -