Abstract
Í Laxdælu fléttast saman margir þræðir. Sumir eru næstum eins og sjálfstæðar
frásagnir inni í stærri framvindu. Þessi flókna saga er alloft notuð sem kennsluefni
við grunnskóla og framhaldsskóla. Eitt af vandamálum kennara sem kynna hana fyrir
unglingum er að einfalda söguna. Slík einföldun getur meðal annars falist í því að
rekja meginþræði sem tengja mörg atvik.
Einn þráður sem liggur gegnum stóran hluta sögunnar rekur hvernig Guðrún
Ósvífursdóttir hefst af takmörkuðum efnum til valda og virðingar. Annar segir
hvernig draumar hennar koma fram. Sennilega er engin leið að þræða allt söguefnið
á eina festi, enda ganga nokkrir þræðir gegnum hvern kafla. Í greininni er rökstutt að
sá þráður sem tengir flesta kaflana sé sagan um ógæfu Bolla Þorleikssonar.
Þótt sagan sé hér túlkuð sem saga um ógæfu Bolla er jafnframt bent á hvað hægt er að
skilja hana á marga vegu. Hún vekur spurningar en skammtar upplýsingar hæfilega
naumt til að svara þeim ekki. Lesandinn þarf að glíma við gátur sem hann fær ekki
einhlít svör við. Það er næstum eins og sögumaður kalli eftir umhugsun og umræðu.
Þetta er eitt af því sem gerir Laxdælu að heppilegu kennsluefni, ekki bara til þess
að kynna heim Íslendingasagna fyrir nemendum heldur líka til að kenna þeim að
rökræða og hugsa um siðferðileg efni.
Original language | Icelandic |
---|---|
Pages (from-to) | 15 s. |
Journal | Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. Sérrit 2018 |
Volume | Sérrit 2018 |
Publication status | Published - 31 Dec 2018 |
Other keywords
- Bókmenntakennsla
- Framhaldsskólar
- Grunnskólar
- Laxdæla saga
- Siðferði
- Uppeldi