Viltu prófa Grunn-PALS kennslustund?

Activity: Talk or presentationOral presentation

Description

Peer-Assisted Learning Strategies (PALS) eru gagnreyndar aðferðir sem byggja á
markvissri kennslu og félagastuðningi. Efnið var þróað við Vanderbilt háskóla í
Bandaríkjunum en hefur verið íslenskað og er aðgengilegt öllum án kostnaðar
gegnum vefinn https://www.sislvefur.is/.
Áhrif notkunar K-PALS (Kindergarten PALS) og G-PALS (1st Grade PALS) verða
kynntar í erindinu Áhrif markvissrar hljóðaaðferðar og félagakennslu á lestrarfærni
barna með vísbendingar um lestrarvanda. Þar verður skýrt frá jákvæðum áhrifum
notkunar kennsluefnisins á lestrarfærni þeirra nemenda sem standa höllum fæti við
upphaf lestrarnáms.
Í þessari vinnustofu fá kennarar tækifæri til að kynnast efninu sjálfu og notkun þess.
Sett verður upp kennslustund með einni æfingu úr Grunn PALS (G-PALS)
kennsluefninu og þátttakendur kynnast efninu með því að setja sig í spor nemenda
og fara með leiðsögn í gegnum æfinguna.
Í lokin verður svigrúm til að spyrja betur út í efnið og fá frekari upplýsingar. Rætt
verður hvernig hægt er að nýta efnið einnig sem sérkennsluefni með einstaklingum
eða minni hópum.
Athugið að ekki er um að ræða fullt námskeið í notkun efnisins en þrátt fyrir það ættu
þátttakendur að fá góða innsýn í notkun kennsluefnisins
PeriodSept 2024
Event titleLæsisráðstefna í Háskólanum á Akureyri: Hvað er að vera læs?
Event typeConference
LocationAkureyri, IcelandShow on map
Degree of RecognitionNational