Viðhorf og notkun kennaranema á ChatGPT

Activity: Talk or presentationOral presentation

Description

Sólveig Zophoníasdóttir Aðjúnkt (flytjandi), Jórunn Elídóttir Dósent (meðhöfundur)
Háskólinn á Akureyri, Hug-og félagsvísindasviðÁ undanförnum misserum hefur verið töluverð umræða í háskólum um kosti og galla ChatGPT í námi. ChatGPT er öflugt gervigreindarverkfæri sem byggir á risamállíkani og líkir eftir mannlegum texta. Í erindinu verður sagt frá rannsókn sem gerð var meðal kennaranema í Háskólanum á Akureyri haustið 2023. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf kennaranema til ChatGPT, varpa ljósi á tækifæri og áskoranir sem nemendur tengdu við notkun verkfærisins í háskólanámi og hvernig þau sáu fyrir sér að nýta verkfærið í framtíðinni. Einnig var skoðað hvort viðhorf og notkun kennaranemanna á ChatGPT breyttust yfir misserið. Gagna var aflað með spurningakönnunum í tveimur námskeiðum í kennarafræði sem lagðar voru fyrir nemendur bæði í upphafi og við lok misserisins. Niðurstöður sýndu að nemendur
voru meðvitaðir um tækifæri og áskoranir tengdar ChatGPT og lögðu áherslu á ábyrga notkun. Einnig mátti greina breytingu á viðhorfi nemenda í garð ChatGPT og þróun í notkun verkfærisins. Rannsóknin veitir upplýsingar um viðhorf og notkun ChatGPT meðal kennaranema og undirstrikar mikilvægi samvinnu innan háskólasamfélagsins um notkun verkfærisins.
Period29 Sept 2024
Event titleMenntakvika: Ráðstefna í menntavísindum: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar
Event typeConference
LocationReykjavík, IcelandShow on map
Degree of RecognitionNational