Description
Vísindadagur Tilraunastöðvar Háskóla Ísland í meinafræði að Keldum hefur að undanförnu verið haldinn annað hvert ár. Hann hefur fest sig í sessi sem vettvangur fyrir kynningu á starfseminni og er nú haldinn í sjöunda sinn. Að vanda verður fjallað um ýmis áhugaverð vísinda- og þróunarverkefni Tilraunastöðvarinnar. Rannsóknir og vísindastörf á helstu fræðasviðum stofnunarinnar verða kynnt, en þau eru: príonfræði, veirufræði, bakteríufræði, sníkjudýrafræði, meinafræði, ónæmisfræði og sameindalíffræði. Eins og fram kemur í dagskrá vísindadagsins þá er starfsemi Tilraunastöðvarinnar fjölþætt. Hér eru m.a. framkvæmdar vísindarannsóknir og greiningar á dýrasjúkdómum sem efla skilning á eðli sjúkdóma og skapa nýja þekkingu. Tilraunastöðin er í samstarfi við háskóla og stofnanir innanlands og víðs vegar í heiminum. Einnig er samstarf við atvinnulífið og opinbera stjórnsýslu, s.s. við landbúnað, fiskeldi, matvælaframleiðslu og líftækniiðnað. Vísindadagurinn er vettvangur til að kynna rannsóknir okkar fyrir ráðamönnum þjóðarinnar, háskólasamfélaginu, dýralæknum og íslensku samfélagi almennt. Einnig eflir vísindadagurinn upplýsingastreymi innan stofnunarinnar og hvetur þannig til aukins samráðs milli starfsmanna hennar og samstarfsaðila innanlands og erlendis. Þessi dagur er liður í að styrkja stefnumótun við uppbyggingu fræðigreina Tilraunastöðvarinnar og gefa yfirlit yfir stöðu einstakra rannsóknarverkefna. Fjöldi fyrirlestra á fyrri vísindadögum hafa verið frá 16 til 23 og fjöldi veggspjalda hafa verið frá sjö til 20. Góður gestur er með framlag á vísindadeginum. Gestafyrirlesari er Hans Tómas Björnsson frá Johns Hopkins Háskóla í Bandaríkjunum og fjallar hann um Kabuki heilkennið. Vísindadagurinn er að venju haldinn í bókasafni Keldna og er aðgangur öllum heimill að kostnaðarlausu. Ráðstefnan er allan daginn og er skipt upp í nokkra ráðstefnuhluta. Erindin og veggspjöldin endurspegla árangursríkt vísindastarf við Tilraunastöðina, fjölbreytt fræðasvið við dýrasjúkdómarannsóknir og alþjóðlegt samstarf. Ráðstefnuhefti með dagskrá og útdráttum erinda og veggspjalda hefur verið fjölritað í tilefni dagsins. Ráðstefnuheftið er aðgengilegt á heimasíðu Tilraunastöðvarinnar www.keldur.is. Ég vil þakka öllum þeim sem gera vísindadaginn mögulegan, starfsfólki á skrifstofu, fundarstjórum, fyrirlesurum og þeim sem kynna veggspjöld. Sérstakar þakkir fær vísindanefndin sem sá um allan undirbúning og skipulag, en í henni eru Edda B. Hafstað Ármannsdóttir, Ólöf Guðrún Sigurðardóttir og Stefán Ragnar Jónsson. Einnig vil ég þakka þeim sem veita fjárhagslegan stuðning og þeim sem sjá um að veitingar eru fram bornar. Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður.Period | 4 May 2016 |
---|---|
Event type | Conference |
Location | Reykjavík, IcelandShow on map |
Degree of Recognition | National |