Stjórnun menntamála hjá sveitarfélögum á Íslandi: Áhrif skólanefnda á starf grunnskóla

Activity: Talk or presentationOral presentation

Description

Erindið fjallar um starf skólanefnda (fræðslunefnda) sveitarfélaga og áhrif þeirra á starf grunnskóla. Sveitarfélög bera ábyrgð á rekstri grunnskóla, gæðum kennslu og daglegu námsumhverfi nemenda, og því skiptir starf þeirra sköpum um árangur náms og farsæld nemenda. Samfélagsbreytingar, fámenni sveitarfélaga, kennaraskortur, og áskoranir er lúta að rekstri og þörfum nemenda hafa gert skólastarfið krefjandi. Þá hefur komið fram gagnrýni á starf skólanefnda og möguleika þeirra til að auka gæði náms, kennslu og velfarnaðar nemenda.
Farið verður yfir þá þætti sem skipta máli í starfi skólanefnda og skoðað með hvaða hætti þeir hafa áhrif á starf grunnskóla. Hlutverk skólanefnda verður skoðað og samhengi þess við skólastarf. Sagt verður frá niðurstöðum af alþjóðlegum samanburði á starfi skólanefnda. Niðurstöður sýna hvernig völd og áhrif skólanefnd eru ólík milli landa og einnig hvernig uppbygging og virkni þessa fyrirkomulags hefur áhrif á skólastarf. Þá koma fram ákveðnar mótsagnir milli hugmynda um lýðræði, valds til töku ákvarðana, sjálfræði skóla, fagmennsku og skólaþróunar.
Nauðsynlegt er að rannsaka hvernig skólanefndir, sem kjarna stefnumótunar og ákvörðunaraðilar skólastarfs, geta betur stutt við faglegt skólastarf og kennsluhætti. Nýlegar rannsóknir, m.a. þrjár nýjar íslenskar doktorsritgerðir, kalla eftir að rannsakað verði samspil stjórnsýslu við skólastarf en fáar rannsóknir hafa farið fram á þessu sviði. Gagnrýnin stefnufræði og kenningar um þátt kennara í mótun skólastarfs munu liggja til grundvallar erindisins.
Period27 Sept 2024
Event titleMenntakvika 2024: Ráðstefna í menntavísindum
Event typeConference
LocationReykjavík, IcelandShow on map
Degree of RecognitionNational