Stjórnarskrárbreytingar framundan?

Activity: Talk or presentationInvited talk

Description

Vinna við tillögur að endurskoðun stjórnarskrárinnar hefur átt sér stað meira og minna samfellt frá árinu 2010, nú síðast með greinargerðum sérfræðinga. Hefur meðal annars verið horft til þeirra kafla sem fjalla um framkvæmdavaldið, Alþingi, dómstóla og mannréttindi. Í greinargerðunum hefur verið lagt til að Alþingi úrskurði ekki sjálft um gildi Alþingiskosninga, hnykkt verði á sjálfstæði dómstóla og skerpt á eftirlitshlutverki dómsvalds gagnvart framkvæmdar- og löggjafarvaldi. Einnig er lagt til að sett verði ákvæði um auðlindir og umhverfi svo og að bætti verði við eignarréttarákvæðið reglu um almennar takmarkanir. Enn fremur er lagt til að ný að ákvæði um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga komi í stjórnarskrá í ljósi þróunar í upplýsingatækni. Loks hafa verið ræddar breyttar áherslur í kaflanum um kjör og hlutverk forseta lýðveldisins og um meðferð framkvæmdavalds. Gert er ráð fyrir að frumvarp til stjórnarskipunarlaga verði lagt fram á komandi haustþingi og á þessari aðalmálstofu Lagadagsins 2024 verður rætt um inntak þess og líklega ásteytingarsteina.
Period27 Sept 2024
Event titleLagadagurinn 2024: Ráðstefna Lögfræðingafélags Íslands, Lögmannafélags Íslands og Dómarafélags Íslands
Event typeConference
LocationReykjavík, IcelandShow on map
Degree of RecognitionNational