Description
Skólamenning getur haft áhrif á hvernig kennarar bregðast við breyttum aðstæðum í starfi. Rannsóknir hafa sýnt að gott samstarf kennara og aðgangur þeirra að stuðningi og faglegum samfélögum kennara gerði þá betur í stakk búna að bregðast við skyndilegum og ófyrirséðum breytingum í kjölfar skólatakmarkana vegna heimsfaraldurs COVID-19. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvernig kennarar í þremur íslenskum framhaldsskólum fótuðu sig í síbreytilegum aðstæðum og hvaða hlutverki samkennarar og stjórnendur höfðu í því ferli. Sýn stjórnenda og kennara á varanlegar breytingar eru einnig skoðaðar. Viðtöl við stjórnendur og kennara sýna að viðbrögð skólanna þriggja við takmörkunum voru ólík. Niðurstöður gefa til kynna að ólík skólamenning skólanna þriggja, sem birtist í viðtölunum við bæði stjórnendur og kennara, hafi haft áhrif á viðbrögð þeirra og hvaða varanlegu áhrif þeir telja faraldurinn hafa á skólastarf.Rannsóknargögn eru viðtöl við samtals fjóra stjórnendur og þrettán kennara í þremur ólíkum framhaldsskólum sem tekin voru tæpu ári eftir að fyrstu takmarkanir yfirvalda voru kynntar. Viðtölin eru þemagreind þar sem leitast er við að greina þær leiðir sem skólarnir þrír og kennarar þeirra fóru til aðlaga kennsluna að því fyrirkomulagi sem var í gildi hverju sinni. Niðurstöðurnar sýna að mikilvægt er að rannsaka viðbrögð kennara við breyttum aðstæðum í kennslu í ljósi skólamenningar svo hægt verði að bregðast betur við heimsfaraldri í framtíðinni, náttúruhamförum eða öðru sem kann að raska skólastarfi.Period | 29 Sept 2023 |
---|---|
Event title | Menntakvika 2023: Ráðstefna í menntavísindum |
Event type | Conference |
Conference number | 2023 |
Location | Reykjavík, IcelandShow on map |
Degree of Recognition | National |