Opponent of the doctoral dissertation of Sigríður Klara Böðvarsdóttir

Activity: Examination

Description

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum frá læknadeild Háskóla Íslands. Föstudaginn 26. september 2008 varði Sigríður Klara Böðvarsdóttir, líffræðingur MSc, doktorsritgerð sína “Chromosomal alterations and telomere dysfunction in breast tumours” eða “Litningaóstöðugleiki og gallar í litningaendum í brjóstaæxlum”. Andmælendur voru dr. David Gisselsson, sérfræðingur frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, og dr. Sigurður Ingvarsson, prófessor og forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Leiðbeinandi í verkefninu var dr. Jórunn Erla Eyfjörð, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Stefán B. Sigurðsson, forseti læknadeildar, stjórnaði athöfninni. Rannsóknin var unnin á rannsóknastofu Háskóla Íslands og Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði. Helstu samstarfsaðilar voru Margrét Steinarsdóttir forstöðumaður á Erfða- og sameindalæknisfræðideild LSH; prófessor Jón Gunnlaugur Jónasson læknir og sérfræðingur á Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði, LSH og Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands. Í doktorsnefnd sátu auk leiðbeinanda, dr. Helga M. Ögmundsdóttir prófessor í læknadeild, dr. Kesara Anamthawat-Jónsson prófessor í líf- og umhverfisvísindadeild og dr. Guðmundur Eggertsson prófessor emeritus.
Period26 Sept 2008
Degree of RecognitionInternational