Description
Samstarf um nám barna og þekkingarsköpun: Áherslur í menntastefnum fjögurra sveitarfélagaSamfella í námi barna og ungmenna er undirstrikuð í alþjóðlegri stefnumótun og lögð er áhersla á að nám barna og ungmenna eigi að vera samfellt frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla, þar sem skólastigið sem tekur við byggir á þeirri reynslu og námi sem barnið hefur öðlast á fyrri stigum, fremur en að markviss undirbúningur fari fram fyrir næsta skólastig. Í þessu erindi eru menntastefnur fjögurra sveitarfélaga og samstarfsáætlanir leikskóla og grunnskóla innan þeirra skoðaðar í ljósi greiningar Moss (2013) á þremur tegundum samstarfs leikskóla og grunnskóla og hvernig best sé að tryggja samfellu í námi barna og koma í veg fyrir rof. Gagnvirkt samstarf leikskóla og grunnskóla er á ábyrgð sveitarstjórna og á að gera grein fyrir samstarfinu í skólanámskrá leikskóla og hvernig staðið er að þessum þáttaskilum. Lögð er áhersla á sveigjanleika og samfellu í skólakerfinu, bæði í inntaki og starfsháttum. Niðurstöður skjalagreiningarinnar sýna að aukin áhersla er lögð á fjölbreytt og þverfaglegt samstarf í núgildandi menntastefnum sveitarfélaganna. Allar byggja stefnurnar meðal annars á stefnu stjórnvalda um Menntun fyrir alla, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þátttaka foreldra, kennara og barna í skólastarfi og áhrif þeirra eru undirstrikuð og forsendur gefnar fyrir því að félagsleg sjálfbærni og réttlæti og tilfinningin að tilheyra skapist í skólastarfi innan hverfa. Til þess þarf vettvang til samræðu sem móta má til dæmis í sveitarfélögum og innan hverfa. Þar þarf samtal að fara fram um gæði skólastarfs í anda lýðræðis, félagslegs réttlætis og sjálfbærni.
Period | 29 Sept 2023 |
---|---|
Event type | Conference |
Conference number | 2023 |
Location | Reykjavík, IcelandShow on map |
Degree of Recognition | National |