Markmið og munnleg endurgjöf kennara til nemenda. Niðurstöður úr greiningu á myndbansupptökum

Activity: Talk or presentationOral presentation

Description

Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs
Rýnt í gæði í kennslu í myndbansupptökum úr kennslustundum

Ágrip
Rannsóknin er hluti af QUINT (Quality in Nordic Teaching) þar sem lögð er áhersla á
gagnasöfnum með myndbandsupptökum í kennslustundum á unglingastigi á Norðurlöndunum í þeim tilgangi að fá innsýn í og greina gæði kennslu. Markmiðið hér var að meta kennslu út frá tveimur kennslufræðilegum þáttum, það er markmiðum og endurgjöf, í kennslustundum í íslensku og stærðfræði. Með því að tilgreina markmið og ræða þau við nemendur er leitast við að búa til umgjörð utan um námið í kennslustundinni og í stærra samhengi. Með endurgjöf er brugðist við færni nemenda, hugtakanotkun og úrræðum þeirra í námi og gefnar ábendingar um það sem betur má fara og tengist öðru fremur skilningi til að auka gæði námsins. Vitað er að
uppbyggjandi og styðjandi endurgjöf og skýr markmið hafa áhrif á nám nemenda. Á Íslandi var gögnum safnað með myndbandsupptökum í 72 kennslustundum í íslensku og stærðfræði í 8. bekk í 10 skólum. Myndböndin voru greind með greiningartækinu PLATO sem samanstendur af 12 kennslufræðilegum þáttum sem mynda umgjörð um mat á gæði kennslu. Kvarðinn er fjögurra stiga og eru stig 1 og 2 skilgreind sem takmörkuð gæði og stig 3 og 4 sem dæmi um góða kennslu. Hverri kennslustund var skipt í 15 mínútna myndskeið sem hvert um sig var greint. Greining myndskeiða í báðum námsgreinum sýndi takmörkuð gæði en gæðin voru heldur meiri
í endurgjöf en skýrleika markmiða. Niðurstöður gefa til kynna að tilefni er til endurskoðunar og tækifæri til úrbóta á þessum þáttum í kennslu.
Period15 Oct 2021
Event titleMenntakvika 2021
Event typeConference