Möguleg framtíðarsýn og rammi náms í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum [Potential future vision and framework for Nursing and Midwifery Education]

Activity: Talk or presentationOral presentation

Description

Markmið þessa erindis er að kynna fyrsta mögulega ramma að uppbyggingu náms í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum í HÍ. Tilgangurinn er að skapa samtalsgrunn þeirra sem koma að námí í þessum fræðum við HÍ, annars vegar sérfræðingum í hjúkrun- og ljósmóðurfræðum og hins vegar sérfræðingum á sviði háskólakennslu og viðmiðum um æðri menntun og prófgráður hérlendis.
Þróun náms í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum hefur einkennst af metnaði og fagmennsku þar sem þekking byggð á rannsóknum hefur verið í forgrunni. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður fengu fyrst menntun sína erlendis, seinna í Hjúkrunarskóla Íslands eða Ljósmæðraskólanum og síðar var allt nám hjúkrunarfræðinga sett undir einn hatt í háskólanámi sem var undirstaða í ljósmóðurfræði þar til hún varð einnig að sjálfstæðri háskólagrein. Til þess þurfti kjark og framtíðarsýn.
Í þessu erindi verður sami kjarkur hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og áður hafður að leiðarljósi. Kynnt verður möguleg framtíðarsýn og rammi náms í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Hér er um ramma náms að ræða en ekki námkvæma upptalningu á einstökum atriðum inntaks námsins. Gerð er grein fyrir mögulegri uppbyggingu í grunnnámi, dæmum um meistaranámsleiðir og ekki síst hvernig nýlega skilgreint örnám getur skapað skipulegan farveg fyrir sí- og endurmenntun starfandi hjúkrunarfræðinga sem margir þurfa að geta sinnt fjölbreyttum verkefnum í fámennu íslensku samfélagi.
Period27 Sept 2024
Event titleMenntakvika 2024: Ráðstefna í menntavísindum
Event typeConference
LocationReykjavík, IcelandShow on map
Degree of RecognitionNational