Activity: Talk or presentation › Oral presentation
Description
Í erindinu var greint frá niðurstöðum spurningakönnunar sem lögð var fyrir þátttakendur vorið 2023 og rýnihópaviðtala við skólastjórnendur haustið 2023. Fyrstu niðurstöður matsins sýna að meirihluta þátttakenda finnst að samstarfslíkanið og vinnulag þess hafi nýst þeim vel ásamt því að efla trú þeirra á eigin getu til að mæta þörfum nemenda. Jafnframt hafi samstarfundirnir aukið sameiginlega ábyrgð á nemendum og styrkt teymishugsun innan skólanna. Þessar fyrstu niðurstöður gefa tilefni til að álykta að innleiðing líkansins gangi vel og að það nýtist starfsfólki skólanna við að finna leiðir til að mæta þörfum nemenda.