Description
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif COVID-19 faraldursins á íslenska framhaldsskólanemendur en miklar áhyggjur hafa verið af stöðu ólíkra hópa í faraldrinum. Vorið 2021 var spurningalisti lagður fyrir nemendur (N = 1.306) í fjórum skólum. Skoðað var hvaða hópar fundu mest fyrir áhrifum faraldursins og fannst erfitt að hefja aftur hefðbundið nám innan veggja skólans. Kannað var hvort munur væri á nemendum eftir kyni, móðurmáli, menntun foreldra og hvort þau töldu sig kljást við þætti sem trufluðu þau í námi. Konur sögðu frekar en karlar að kvíði hefði aukist í fjarkennslu og nemendur sem áttu háskólamenntaða foreldra voru frekar á því að kvíðinn hefði aukist. Um helmingur var meira einmana í fjarkennslu, konur marktækt frekar en karlar, lesblindir og þeir sem áttu ekki íslensku að móðurmáli voru síður einmana en aðrir samnemendur. Ríflega helmingi fannst gott að mæta aftur í skólann frekar þeim sem áttu íslensku að móðurmáli og þeim sem áttu foreldra með háskólamenntun. Nemendur sem upplifðu truflun af kvíða, félagsfælni, þunglyndi eða lesblindu voru síður á því að gott væri að mæta aftur í skólann. Niðurstöður benda til þess að ákveðinn hópur finni sig betur í hefðbundnu staðnámi það er nemendur sem eiga háskólamenntaða foreldra, eiga íslensku að móðurmáli og kljást ekki við félagsfælni, þunglyndi, kvíða eða lesblindu sem truflar nám þeirra. Þetta vekur upp áleitnar spurningar um stöðu hinna sem ekki virðast finna sig í hefðbundnu framhaldsskólanámi. Brýnt er að hlúa sérstaklega að þessum nemendahópi nú þegar skólastarf er að færast í fyrra horf.Period | 29 Sept 2023 |
---|---|
Event title | Menntakvika 2023: Ráðstefna í menntavísindum |
Event type | Conference |
Conference number | 2023 |
Location | Reykjavík, IcelandShow on map |
Degree of Recognition | National |