Dæmi um þrjár leiðir til að eyða kynjahalla í stjórnunarstöðum (29.október 2020) Vísir.

Activity: OtherEducational material

Description

„Helstu skýringarnar liggja í ráðningarferlinu og tengslanetinu. Stöðurnar eru ekki auglýstar, ferlið gengur hratt fyrir sig og færri konur en karlar hafa fengið tækifæri, því hafa fleiri karlar reynslu,“ segir Ásta Dís Óladóttir dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands aðspurð um það hvað hún telji skýra lágt hlutfall kvenna í framkvæmdastjórastöðum. Og það þrátt fyrir að konur séu í miklum meirihluta þeirra sem útskrifast úr háskólum. „Ef við lítum bara til þeirra sem hafa lokið meistaragráðu í viðskiptafræði, þar sem það stendur mér nærri og stór hluti stjórnenda hefur þann bakgrunn, þá hafa mun fleiri konur lokið námi á síðustu 15 árum, tæplega 1400 konur og rúmlega 800 karlar,“ segir Ásta Dís og bætir við: „Þá benda niðurstöður rannsókna til þess að frekar sé leitað í tengslanet karla og að bæði konur og karlar eru ekki nógu dugleg að benda á, hvetja og styðja konur.“

Í gær og í dag fjallar Atvinnulífið á Vísi um kynjahalla í stjórnendastörfum en aðeins 13% framkvæmdastjóra Framúrskarandi fyrirtækja eru konur samkvæmt niðurstöðum greiningar Creditinfo.

Í þessari þriðju grein af þremur er rætt við Ástu Dís Óladóttur dósent í Viðskiptafræðideild HÍ. Ásta Dís stóð að rannsókn í fyrra, ásamt Gylfa Dalmann Aðalsteinssyni dósent og Þóru H. Christiansen aðjúnkt, um stöðu kvenna í hlutverki æðstu stjórnenda á Íslandi. Þátttakendur í rannsókninni voru 186 konur í atvinnulífinu. ...
Period29 Oct 2020